Flugfélagið Icelandair hefur blásið til nýs leiks á vef sínum þar sem fólki gefst, gegn því að mæla uppáhalds borg sinni bót, tækifæri á að vinna ferð fyrir tvo til sinnar uppáhaldsborgar næstu þrjár vikurnar.
Þurfa þátttakendur að skrifa lítinn pistil um hvað sé svona frábært við sína uppáhaldsborg og í framhaldinu mun bæði dómnefnd götunnar, gegnum fésbókina, og dómnefnd Icelandair velja bestu frásagnirnar og veita verðlaun þeim er upp úr standa.
Leikir eru skemmtilegir og ekki sakar þegar verðlaunin eru vænleg eins og í þessu tilfelli. En merkileg tilviljun er það að þeir sem eiga uppáhaldsborgir aðrar en þær sem Icelandair flýgur til geta ekki tekið þátt. Aðeins er nefninlega í boði að tilnefna þær borgir sem eru á áætlun flugfélagsins en þær eru reyndar 30 talsins í fimmtán löndum.
Leikjavefur Icelandair hér.






