Tíðindi

Osló á spottprís í vetur

  16/11/2012júlí 13th, 2021No Comments

Svo virðist sem Andri Már Ingólfsson, fyrrum forstjóri Heimsferða, sem yfirgaf klakann fyrir betri haga í Danmörku fyrir margt löngu sé að sjá að sér. Allavega hyggst flugfélag hans hefja reglulegar ferðir milli Keflavíkur og Osló strax um jólin og það á spottprís.

Andri Már er stjórnarformaður og stór eigandi leiguflugfélagsins Primera Air sem hefur meðal annars flogið töluvert fyrir ferðaskrifstofuna Heimsferðir sem fyrirtæki Andra á líka að stærstum hluta líka.

Primera Air hefur lítið sinnt íslenska markaðnum nema í stöku tilfellum fyrir Heimsferðir en nú horfir öðruvísi við og ætlar flugfélagið að fljúga reglulega milli Oslóar og Keflavíkur frá áramótum. Flogið verður þar á milli aðra hverja viku til að byrja með en vikulega í febrúar og mars.

Þetta er afbragðsgóðar fréttir því ólíkt því sem íslenskir kaupmenn vilja meina þá er samkeppnin af hinu góða. En þar með er ekki öll sagan sögð. Besta fréttin er verðið sem Primera hyggst bjóða en önnur leiðin með sköttum og gjöldum á að kosta skítblankann Íslendinginn aðeins 9.900 krónur. Það er um það bil tíu þúsund krónum ódýrara en sama flug aðra leiðina með Icelandair svo dæmi sé tekið.

En það er meira í pokahorni Primera Air.

Félagið býður nefninlega afskaplega hagstæð fargjöld frá Osló til sólríkra staða á borð við Kanaríeyja en þangað kemstu með sama flugfélagi fyrir rúmar 25 þúsund íslenskar krónur til Las Palmas á Kanarí eða Santa Cruz á Tenerife. Fyrir utan að Osló er höfuðbækistöð Norwegian lággjaldaflugfélagsins sem getur komið þér ansi víða í heiminum fyrir klink.

Heimasíða Primera Air hér.