Tíðindi

Hvað er Oska-Travel og er þeim treystandi?

  16/11/2012No Comments

Velflestir hafa nú væntanlega fengið Fréttatímann inn um lúguna en meðfylgjandi blaðinu er merkilegt tilboð frá ókunnri ferðaskrifstofu. Þar er auglýst lúxus- og menningarferð til Tyrklands fyrir aðeins 69.900 krónur á mann með öllum sköttum og gjöldum.

Tyrkland á 69.900 á mann í átta daga ferð hljómar ótrúlega en flott ef rétt reynist

Gullna reglan í lífinu hvað varðar viti borið fólk er að sé eitthvað of ótrúlegt til að vera satt er það yfirleitt raunin. Átta daga lúxus Tyrklandsferð á tæpar 70 þúsund krónur á mann er sannarlega nokkuð ótrúlegt. Við segjum nokkuð vegna þess að ekki er hægt að miða  við verð íslenskra ferðaskrifstofa sem eru út úr korti miðað við verð á sambærilegum ferðum í nágrannalöndum okkar.

Oska-Travel er hluti af þýsku samsteypunni Kenba Group sem samkvæmt vef þess rekur einar sex ferðaskrifstofur í jafnmörgum löndum. Á íslenskri heimasíðu sinni, Oska-Travel.is, stærir ferðaskrifstofan sig af norskum tryggingum og reikningi í Landsbanka Íslands.

Fararheill getur staðfest að Oska-Travel hefur opinbera tryggingu í Noregi og hefur greitt öll tilskilin gjöld þar í landi. Ekki hefur fengið staðfest þegar þetta er skrifað að sú trygging nái til ferða Íslendinga en það verður að telja ólíklegt. Í öllu falli gildir sú trygging aðeins ef fyrirtækið fer yfir um en tryggir ekkert annað.

Ekki fæst annað séð en í lagi sé að grípa tilboð Oska-Travel en til öryggis er best að verða sér úti um eins viðamiklar ferðatryggingar og völ er á.

En sé allt með felldu er þetta sannarlega vænleg viðbót við ferðaflóruna hérlendis og veitir ekki af.