Tíðindi

Kanarí á helmingsafslætti

  15/11/2012febrúar 26th, 2014No Comments

Það þarf ekki mikið að gnauða þessi dægrin fyrir utan gluggann til að mann langi í ljúflegheitin á Kanarí og losna við þann lægðafaraldur sem bombar Íslandið haust og vetur.

Nú er ferðaskrifstofan Heimsferðir að gera það aðeins auðveldara með helmings afslætti á lokasætum sínum til Kanarí.

Um er að ræða þrjár dagsetningar í boði: 22. nóvember, 30. nóvember og 5. desember og er lengd ferðar frá viku og upp í þrjár vikur. Enginn skal gera lítið úr dvöl á Kanarí lungann úr desember enda er sá sem slíkt fer búinn um leið að slá tvær flugur í einu höggi; annars vegar losna við einn þriðja af harðasta og leiðinlegasta tíma vetrar og jafnframt slaka á í hjartanum áður en sú geðbilun sem Íslendingar kalla jólaundirbúninginn fer á fullan skrið.

Tveir fyrir einn kalla Heimsferðir tilboð sitt en að sama skapi má kalla það helmings afslátt af bæði flugfargjöldum og gistingu á völdum hótelum. Leitun er að tilboði hérlendis sem gefur þér kleift að hanga þrjár vikur á sæmilegu hóteli plús flug út og heim fyrir tæpar 130 þúsund krónur á mann. Betri verða tilboðin einfaldlega ekki.

Heimasíða Heimsferða hér.