Ekki er langt síðan hægt var að lofa flugfélagið Primera Air fyrir það að leyfa farþegum sínum að taka með tösku án þess að greiða neitt aukalega ofan á fargjaldið. Nú er farið út í öfgar á hinn veginn.

Eldsneytisverð aldrei lægra og launakostnaður ekki heldur. Samt snarhækkar Primera Air farangursgjöld sín…Mynd Rúv
Þrátt fyrir allt kemur það fyrir á bestu bæjum að fólk gleymir að bóka tösku með þegar flug er bókað. Stundum hreint kæruleysi, stundum slys en stundum telur fólk ekki þörf á tösku meðferðis sem svo breytist áður en flugið hefst.
Vei þeim er gleymir að bóka töskuna fyrirfram hjá Primera Air. Sá sem mætir í flug með flugfélaginu og hyggst greiða fyrir eina töskudruslu á vellinum þarf að gjöra svo vel og reiða fram 9.800 krónur fyrir hvern fluglegg!
Það er ekkert smáræðis gjald fyrir eina 23 kílóa tösku á vellinum. Reyndar fer þessi upphæð langleiðina upp í lægstu fargjöld sama flugfélags. Upphæðin líka miklu hærri en hjá velflestum öðrum flugaðilum og þar með töldum lággjaldaflugfélögum eins og sést á meðfylgjandi korti.
Það er líka sorglegt hvað græðgin virðist hafa farið með yfirmenn Primera Air. Hver man til dæmis ekki eftir flugi aðra leið til Billund fyrir 9.900 krónur MEÐ FARANGRI hér fyrir rúmu ári síðan. En nú, þegar eldsneytisverð hefur ekki verið lægra í aldaraðir og tekist hefur að lækka launakostnað verulega með því að færa starfsemina frá Íslandi til Litháen finnst mönnum líka tími til kominn að setja á hæstu töskugjöld sem finnast…







