F erðaskrifstofur sem bjóða ferðir til Kúbu gera voðalega mikið af því að veita okkur upplýsingar um það sem við flest vitum um landið. Kúba er kommúnistaríki, tónlist og dans þar í miklum blóma og eldgamlir bandarískir bílar enn vinsælir á götum úti fyrir utan auðvitað fyrsta flokks strendurnar á Varadero. En hvað um allt þetta praktíska?

Hvað kosta hlutirnir á Kúbu í samanburði við aðra ferðamannastaði? Mynd Lars Kristian Flem

Hvað kosta hlutirnir á Kúbu í samanburði við aðra ferðamannastaði? Mynd Lars Kristian Flem

Almennt er heimsókn til Kúbu ekkert nema unaðssemd frá A til Ö enda þar fátt að forðast, fólkið yfirmáta vingjarnlegt og hjálpfúst og svik, prettir og svindl gagnvart ferðafólki mun minna en reyndin er víða annars staðar. Engin óargadýr að óttast þó vissulega séu hér ófrýnileg skordýr og að frátöldum hótelkeðjunum á Varadero hefur Kúba haldið sérkennum sínum og gömlum fátæklegum stíl annars staðar.

En hvað þarf að hafa í huga helst áður en fæti er stígið á kúbverska jörð?

Í fyrsta lagi þarf að muna að æða ekki af stað bara því það gengur ekki. Til Kúbu þarf sérstaka ferðamannaáritun og hana þarf að fá áður en lagt er í ferð. Slík áritun veitir dvalarleyfi á eynni í 30 daga og áritunina þarf að fá gegnum sendiráð eða ræðismenn Kúbu. Engir slíkir eru á Íslandi en stöku ferðaskrifstofur sem þangað eru með ferðir hafa sýnt því lit að aðstoða þá sem til Kúbu fara á eigin spýtur eða með öðrum hætti. Gefa skal sér góðan fyrirvara að sækja um slíkt.

Í öðru lagi kemur fyrir að fólk gleymir að það er brottfararskattur á eynni. Þess vegna ráð að geyma eins og 25 CUC, kúbverskir pesos, til að greiða gjaldið. Að sama skapi skal þó reyna að eyða öllum slíkum peningum annars því stundum er ekki hægt að skipta þeim aftur í dollara eða pund við brottför eins og lög kveða á um. Kúbverskir peningar vita gagnslausir annars staðar. Þessu tengd skal ætíð muna að það eru tvenns konar kúbverskir peningar í umferð. Útlendingamiðillinn CUC og sá sem heimafólk notar, MN, en sá er mun minna virði.

Í þriðja lagi er hið mesta óráð að gagnrýna stjórnvöld hér í heyranda hljóði. Þó Castro og félagar eigi ekki upp á pallborðið hjá sumum Kúbverjum líða þó fáir að karlinn eða stjórn hans fái ádrepur frá ferðafólki. Í verstu tilfellum getur það orðið að lögreglumáli.

Í fjórða lagi er vert að læra eins og nokkur orð í spænsku ef löngu er til að upplifa Kúbu utan helstu ferðamannastaða. Á betri hótelum og vinsælli ferðamannastöðunum eru vissulega flestir sem geta stautað sig fram úr ensku en annars staðar ekki. Þú þarft að bjarga þér ef þú ætlar út fyrir þægindaboxið hér.

Í fimmta lagi er kostnaður á Kúbu ekki eitthvað sem liggur yfirleitt augljóst fyrir. Hér eru reyndar ekki mjög margar verslanir en það sem hefur breyst á síðustu tíu til tuttugu árum er að þeir staðir sem ferðamenn fjölmenna á eru að minnsta kosti helmingi dýrari en sambærilegir staðir annars staðar. Og helmingi dýrari þýðir að hótelherbergi, málsverður eða romm á barnum er ekkert mikið ódýrara en á öðrum ferðamannastöðum í heiminum.

Í sjötta lagi skal muna að kreditkort eru almennt ekki notuð í landinu og þó hér finnist hraðbankar í túristahverfunum afgreiða þeir ekki peninga ef kortið er frá bandarískum banka eða kreditkortafyrirtæki. American Express gagnslaust hér enn sem komið er þó þetta horfi til batnaðar nú þegar samskipti Kúbu og Bandaríkjanna eru ekki lengur í frostmarki.

Í sjöunda lagi skal alltaf verða sér úti um ferðatryggingu áður en haldið er til Kúbu. Í sumum tilfellum er fólki neitaður aðgangur ef ekki er hægt að sýna fram á slíka tryggingu. Ef leita þarf læknisaðstoðar þarf að greiða fyrir með CUC seðlum og leita svo á náðir tryggingafélags með endurgreiðslu.

Ráð númer átta varðar netið en óhætt er að fullyrða að netnotkun minnkar til muna hér. Ástæðan er slök og hæg netþjónusta. Það er nánast algilt hvort sem er á netkaffihúsum eða bestu hótelum. Netið er of hægt til að fólk sem vant er góðu hangi lengi yfir. Þráðlaust net finnst nánast hvergi enn sem komið er.