Sértilboð, páskasala, útsala, stórútsala, rýmingarsala og nú síðast tveir fyrir einn. Hljómar eins og auglýsingar frá BM Vallá áður en Víglundur Þorsteinsson setti það á hausinn. Reyndin þó sú að hér er um ferðaskrifstofuna Nazar að ræða.

Allt reynt til að selja ferðir hjá Nazar og gripið til lyga svona til að kóróna allt saman

Allt reynt til að selja ferðir hjá Nazar og gripið til lyga svona til að kóróna allt saman

Það er fátt ömurlegra en ljúga að hugsanlegum viðskiptavinum og það er ferðaskrifstofan sek um að gera fyrir nokkrum dögum síðan þegar hamrað var á að þá væri nú allra síðasti séns að tryggja sér Tyrklandsferð á stórútsöluverði. Nokkrum dögum síðar er sama ferðaskrifstofa að bjóða tveir-fyrir-einn túra til Tyrklands.

Nú má vitaskuld deila um hvort tveir-fyrir-einn pakki, helmings afsláttur, séu betri kjör en á stórútsölu eða útrýmingarsölu eins og auglýst var fyrir skömmu. Vera má að kjörin séu svipuð og að „útrýmingarsala“ merki allt að helmings afslátt frá upprunalegu verði. En það er rosalega undir belti að tyggja ofan í fólk að um síðasta séns sé að ræða þegar fyrir liggur að enn eitt tilboð og síst verra er að detta inn nokkrum sólarhringum síðar. Sem er það sem Nazar hefur verið að dunda sér við að undanförnu.

Sem segir ýmislegt um þessa ferðaskrifstofu…