Það eru liðin fjögur ár síðan ritstjórn sá síðast auglýst flug fram og aftur til Bangkok í Tælandi frá Bretlandi niður í 70 þúsund krónur. Nú er það aftur í boði.

Dúndurtilboð Emirates til sölu þessa dagana

Dúndurtilboð Emirates til sölu þessa dagana

Að vísu hér um sértilboð að ræða en ekki normalt flugfargjald eins og raunin var 2011 og 2012 þegar flug fram og aftur fékkst reglulega á þessu fína verði. Það er flugfélagið Emirates sem þetta er að bjóða meðal annars og bóka þarf fyrir 19. maí til að hreppa hnossið.

Bangkok fjarri því eina borgin í boði á sérstöku tilboðsverði, sem okkur sýnist vera gróflega 10 til 15 þúsund krónum lægra verð en almennt gerist lægst. Þyki einhverjum Víetnam spennandi er þangað komist niður í 85 þúsund báðar leiðir frá London. Nú eða þá gerviborgin Dúbai fram og aftur niður í 62 þúsund kall svo fátt sé nefnt.

Sjálfsagt að stúdera þetta fyrir ferðaþyrsta þarna úti 🙂