Par hérlendis sem kaupir allra ódýrasta ferðapakka ferðaskrifstofunnar Nazar til Tyrklands og gistir á Pegasus Royal hótelinu greiðir næstum 140 þúsund krónum meira fyrir þann munað en par í Noregi greiðir hjá sömu ferðaskrifstofu.

Miklu lægra verð á ferðapökkum Nazar í Noregi en hérlendis

Miklu lægra verð á ferðapökkum Nazar í Noregi en hérlendis

Það getur margborgað sig hafi menn forsjálni að vopni að kaupa Tyrklandsferð í Noregi jafnvel þó greiða þurfi fyrir flug til Osló og heim aftur að ferð lokinni samkvæmt úttekt Fararheill á pakkaferðum Nazar. Sú rekur ferðaskrifstofur á öllum Norðurlöndunum þar sem sams konar ferðir eru í boði og því er óvenju einfalt og fljótlegt að bera saman verð á þessum sömu ferðum.

Á vef hins íslenska Nazar má sjá lægsta verð í boði á ferðum á tiltekin hótel í sumar eins og sjá má á skjáskotinu hér að neðan:

nax3Fyrir ókunnuga virðist þetta ekkert of hræðilegt miðað við það sem jafnan þarf að greiða fyrir vænlegar sumarferðir hér á Fróni. Nái áhugasamir að tryggja sér lægsta verð má njóta Tyrklandssólar með maka og tveimur börnum kringum 270 þúsund krónur á Pegasos Royal svo eitt dæmi sé tekið. Margt til verra en það.

En það er líka margt til betra en það eins og sést á þessu skjáskoti frá hinni norsku Nazar:

nax4Nú þurfum við bara að skoða gengi dagsins til að finna út hvað Norsarinn er að fá fyrir sinn snúð. Skemmst er frá að segja að lægsta verð á pakka til Pegasos Royal, þeim sama og kostaði íslensku fjölskylduna að lágmarki 270 þúsund alls, kostar norska fjögurra manna fjölskyldu ekki nema 146 þúsund krónur rúmar miðað við gengi dagsins. Það ekki nema hátt í 90% verðmunur á næstum alveg sömu vöru.

Nú kviknar á peru hjá einhverjum speking þarna úti sem hristir hausinn. Það er jú ekki eins og það sé jafn langt flug frá Osló til Tyrklands og frá Keflavík til Tyrklands. Þetta sé allt eðlilegt.

Nema kannski fyrir þær sakir að til Noregs og heim aftur er komist með sæmilegum fyrirvara niður í fimmtán til sextán þúsund krónur fram og aftur þegar best lætur. Fjölskyldan umrædda getur flogið til Noregs og heim niður undir 50 þúsund krónum alls með Norwegian ef fyrirvarinn er nægur. Takist að negla slíkt er fjögurra manna fjölskyldan að spara sér allt að 70 þúsund krónur á nákvæmlega sömu pakkaferð til Tyrklands. Það munar um minna fyrir velflestar íslenskar fjölskyldur.