Hann hefur hlotið alþjóðleg verðlaun og fær ágæta dóma hjá mörgum notendum. En eftir duglega yfirlegu getur ritstjórn Fararheill EKKI mælt með hinum íslenska TripCreator.

Flottur vefur og fínn en mínusarnir safnast fljótt saman
Ritstjórn hefur um hríð stúderað nýjan ferðavef sem ekki aðeins hefur hlotið alþjóðleg verðlaun heldur og virðist hitta vel í mark miðað við umsagnir. Þetta er hinn íslenski TripCreator sem getur skipulagt ferðalög frá A til Ö fyrir þá sem helst vilja ferðast á eigin spýtur en vita ekki alveg hvað skal skoða eða hvert skal halda.
Það jákvæða fyrst. Engin spurning er að margt er æði flott og vel gert hjá aðstandendum þessa vefs. Hann er bæði flottur og vel uppsettur svo jafnvel fólk óvant tölvum ætti vel að ráða við. Fjölmargir möguleikar eru í boði að velja um og þar finna allir eitthvað við hæfi hvort sem fólk vill komast í menningu í Munchen eða njóta náttúru Wales. TripCreator bendir á fjölmarga forvitnilega staði og neglir bæði hótel og bílaleigubíl sé þörf á fyrir fólk. Enn er flug ekki með í pakkanum en okkur sýnist það aðeins vera tímaspursmál hvenær það dettur inn.
Sem sagt: langi fólk að túra um ókunnugt land en hafa lítið eða ekkert fyrir er hér vefur sem nýst getur beint af kúnni fyrir þá lötustu ellegar til að púsla saman túrum eins og hver og einn vill og kýs.
Mínusarnir eru þó alltof margir að okkar mati eftir að hafa prófað að setja saman allnokkrar ferðir. Fyrir það allra fyrsta þá gengur það þvert á hugmyndina að ferðast frjáls og óháð á eigin vegum að negla niður hverja klukkustund í ferðinni. Í annan stað þykir okkur stór mínus að bjóða eingöngu hótel gegnum Booking.com. Sú bókunarvél er með þeim allra dýrustu í bransanum og úrval hótela og gististaða takmarkað. Þá er leiðinlegt að fá uppgefið verð í íslenskum krónum en nánast allar aðrar upplýsingar á vefnum eru á engilsaxnesku.
Dæmi um það sem við fundum athugavert við TripCreator:
ÍRLAND – sex nátta ferð með áherslu á golf, á meðalverði og heldur í rólegheitum
- Við komu á flugvöllinn í Dublin bíður góður bílaleigubíll sem við fengum allan tímann fyrir rúmar 37 þúsund krónur sem er gott verð. Öllu daprara að TripCreator setti okkur sex nætur á fjögurra stjörnu flugvallarhótel sem kostaði 156.191 krónu. Ýmislegt við það að athuga. Hver vill dvelja á flugvallahóteli og það dýru flugvallahóteli (26 þúsund nóttin) og nota það sem miðstöð? Ekki við hjá Fararheill. Sérstaklega ekki þegar sex nætur á sama hóteli á sama tíma á okkar eigin hótelbókunarvél kostar aðeins 135 þúsund krónur eða 16% lægra verð!
- Lagt er til að við hefjum strax ferðina eftir að búið er að skottast á hótelið og skjótumst 60 kílómetra til að skoða Castletown House. Það gamalt stórbýli og vel skoðunar virði en kannski ekki meðan lokað er. Miðað við opnunartíma hússins er nefninlega æði tæpt að við náum í tæka tíð. Súrar klukkustundir þar ef komið er að lokuðum dyrum.
- Daginn eftir leggur TripCreator til að við skoðum fjóra áhugaverða staði í miðborg Dublin. Allt í góðu með það nema kannski helst til fáir staðir að taka inn á heilum degi. Varla margir sem endast í eina og hálfa klukkustnd að skoða Þjóðarvaxmyndasafnið. Þess utan er líka búið að loka Christ Church Cathedral klukkan 18:05 þegar TripCreator mælir með stoppi þar.
- Á þriðja degi reis Jesús frá dauðum en okkur er gert að aka í klukkustund til norðurs að Bru Na Boinne sólhofinu sem sannarlega er þess virði. Eftir hádegi eigum við svo rástíma á Portmarnock golfvellinum sem er einn af fimm dýrustu völlum landsins og hringur þar fyrir tvo kostar aðeins 22 þúsund krónur. Frábært verð alveg með tilliti til að bóki fólk beint hjá klúbbnum kostar hringur per mann að lágmarki 28 þúsund. Það er eitthvað undarlegt við 150% afslátt þar á bæ miðað við tvo saman.
- Fjórða daginn bíður okkar aftur túr um miðborg Dyflinnar og þá fyrst þrjár stundir í dýragarði borgarinnar. Ekki skal lítið gert úr þeim dýragarði en tveir fullorðnir einstaklingar með áhuga á golfi eru líklega ekki spenntir fyrir þriggja tíma prógrammi þar snemma morguns. Búið að loka Dublin Castle þegar TripCreator vill að við kynnumst þeim ágætu húsakynnum klukkan 18:15.
- Dagur fimm rennur upp og nú bíður okkar golf á Island Golf Club. Þar kostar hringur fyrir tvo 58.887 krónur hvorki meira né minna. Svo undarlega vill til að meðan fyrri golfhringurinn fékkst á fáránlega lágu verði er annað uppi á tening hér. Bóki fólk hring beint á vellinum kostar spilerí fyrir tvo „aðeins“ 42 þúsund krónur. Eitthvað undarlegt þar á ferð. Að hring loknum er okkur ráðlagt að aka í hálftíma til að skoða gamalt klaustur og þaðan áfram klukkustundar akstur til viðbótar til að berja augum fornt þorp. Óvitlaust prógramm í sjálfu sér en án þess að alhæfa þá eru fleiri en færri sem kjósa afslöppun eftir golfhring á flottum velli og kannski ekki margir tilbúnir í tveggja til þriggja klukkustunda þvæling að leik loknum.
- Dag sex telur TripCreator aftur sniðugt að skjótast inn í miðborg Dublin og bendir á þrjá ágæta staði til að eyða tíma framyfir hádegi. Þá tekur svo við einn golfhringur í viðbót á The Royal Dublin Golf Club sem er í útjaðri borgarinnar. Frábær völlur og hér loks stemmir uppgefið verð TripCreator við uppgefið verð á vef vallarins. 42 þúsund krónur fyrir tvo.
- Sjöundi dagurinn, við tékkum út, skilum bílnum og höldum heim. Heildarverð á túrnum alls 332.358 þúsund fyrir utan flugið!!!
Hér er margt undarlegt. Hvers vegna að benda á hótel við flugvöllinn? Hvers vegna þrjár mismunandi ferðir inn í miðborg Dublin á sex dögum? Hvers vegna svo mikill munur á verði á golfi? Hvers vegna aðeins bent á allra dýrustu golfvellina í grenndinni? Hvers vegna benda á að heimsækja staði sem eru við að loka eða lokaðir?
Síðast en ekki síst þá er afar langsótt að flokka kostnað í meðallagi þegar greiða þarf 332 þúsund fyrir sex nætur og það fyrir utan flugið. Með flugi skjagar pakkinn hátt í 400 þúsund krónur eða tæplega 70 þúsund per dag. Auðvitað má hér öllu breyta eftir vild en tíminn sem fer í slíkt fer langleiðina í að skipuleggja ferðina alfarið sjálf/ur.
Einhver kann að spyrja hvers vegna við kíktum á þetta tiltekna dæmi hér. Ástæðan sú að við hjá Fararheill erum nýbúin að skipuleggja golftúr fyrir fjóra einstaklinga á Írlandi á sama tímabili og hér um ræðir með flugi, gistingu, bíl og fimm golfhringjum fyrir 124 þúsund krónur á mann. Svona svo fólk hafi eitthvað viðmið 🙂







