„Íslendingar hafa einblínt mjög og farið á staði eins og t.d. Pattaya, sem er svona gervistaður svipaður Benidorm á Spáni.“

Álit Hermanns Gunnarssonar á Pattaya 1994 var ekki hátt

Álit Hermanns Gunnarssonar á Pattaya 1994 var ekki hátt

Fátt skemmtilegra en rýna í gamlar fréttir af klakanum nú þegar velflest eldri dagblöð eru auðlesin á netinu. Þar er gullnáma af safaríkum molum þeirra frægu Íslendinga sem komust í blöðin og kannski sögðu eitthvað sem hljómar undarlega eða kjánalega nokkrum árum eða áratugum síðar.

Eins og þessi klausa hér til hliðar úr ítarlegu viðtali Pressunnar sálugu við Hermann Gunnarsson sáluga en hann var þá fararstjóri í ferðum til beggja staða.

Þessu mati Hermanns árið 1994 er Fararheill hundrað prósent sammála árið 2015 enda báðir staðir, Benidorm og Pattaya, versnað til mikilla muna. En kannski segir svolítið um kappann að gera lítið úr sama stað og hann sjálfur sótti stíft um árabil.