Stór lýsingarorð eru notuð í auglýsingum ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn um Tælandsferð eina sem fyrirtækið er að bjóða næsta vetur og vera kann að einhverjir þarna úti hafi fengið gæsahúð af spenningi. Engin þörf á því.

„Einstakt kynningarverð“ til Tælands er bara fjári dýrt þegar allt kemur til alls. Skjáskot
Einstök ferð! Ómótstæðileg ferð! Lúxusferð! Ótrúlegt kynningarverð!
Sterk eru lýsingarorðin í auglýsingum ÚÚ vegna tólf nátta túrsins til Hua Hin og Bangkok í nóvember næstkomandi. Túr sem sagður er á aldeilis frábæru verði eða 298.900 krónur á mann miðað við tvo saman. Samtals tæpar sex hundruð þúsund krónur.
Við skiljum reyndar ekki hvers vegna þetta er auglýst sem „ótrúlegt kynningarverð“ því engar aðrar Tælandsferðir finnast á vef ÚÚ. En kannski ætlar þessi ferðaskrifstofa svindlarans Pálma Haraldssonar að fara að gera út á ferðir til Asíu eftirleiðis.
Nánar má lesa um þessa himinskautareisu ÚÚ hér en okkur hjá Fararheill lék hugur að vita hvað sami eða svipaður túr myndi nú kosta ef fólk skipulegði nú ferðina sjálf. Hvað spörum við ef við eyðum 20 mínútum í að græja hlutina sjálf?
Í ljós kemur að ekki þarf 20 mínútur til að græja að mestu leyti sömu ferð, að frátöldum tveimur skoðunarferðum um Bangkok, tveimur kvöldverðum og íslenskum fararstjóra, niður í 173.808 krónur á mann miðað við tvo saman. Samtals 347.616 krónur alls.
Ekki aðeins er okkar pakki rúmlega 70% ódýrari en pakkinn hjá Úrval Útsýn. Okkar pakki er líka lengri. Tólf dagar of lítið þegar farið er alla leið hinu megin á hnöttinn. Fjórtán dagar algjört lágmark.
Hvernig fórum við að?
Svona:
- Fundum lægsta verð á flugi gegnum Google Flights rösklega yfir svipað tímabil í nóvember og ferð Úrval Útsýn stendur yfir en lengdum í pakkanum úr tólf í fjórtán daga. Niðurstaðan flug fram og aftur, gegnum Stokkhólm og Frankfurt, á manninn fyrir 79.785 krónur eða 159.570 fyrir tvo.
- Á hótelleitarvél Fararheill fást tíu nætur á fjögurra stjörnu Amari í Hua Hin með morgunverði frá 9. nóvember til 19. nóvember fyrir 119.562 krónur
- Á hótelleitarvél Fararheill fást fjórar nætur á fimm stjörnu Ramada Plaza Menam í Bangkok með morgunverði frá 19. nóvember til 23. nóvember niður í 56.482 krónur.
- Rútuferð frá Bangkok til Hua Hin kostar um 1500 krónur á mann og sama til baka svo sá pakki fyrir tvo saman kostar kringum sex þúsund krónur.
Ergo: við komin með gróflega sömu ferð og Úrval Útsýn segir á „ótrúlegu kynningarverði“ fyrir alls rúmar 347 þúsund krónur. Verðmunur í krónum talið alls rúmar 250 þúsund á parið sem dugar mætavel til að kaupa tvær til þrjár skoðunarferðir um Bangkok og óhætt að henda með nokkrum kvöldverðum á hótelunum með í kaupbæti án þess að stressa sig 🙂
Góða ferð.







