Fjölskyldan nýkomin heim úr tveggja vikna dvöl á Costa Adeje á Tenerife og það er þá fyrst sem þið fregnið að Gulla frænka og maðurinn hennar og nágrannarnir neðar í götunni í Mosfellsbænum voru einnig þar á nákvæmlega sama tíma.

Nýtt app lætur þig vita ef kunningjar, vinir eða ættingjar eru í grenndinni hvarvetna í veröldinni.
Hver kannast ekki við svona lagað á vinsælum áfangastöðum landans? Hversu fúlt er að uppgötva seint og um síðir að skemmtilegir vinir eða ættingjar voru á sömu slóðum erlendis á sama tíma og enginn vissi neitt. Hundfúlt alveg.
En betri tími fer í hönd fyrir þá sem vilja gjarnan hitta kunnuga á ókunnum slóðum. Snjallsímaappið Tripstir, til hjálpar en það fyrirbæri safnar saman ferðaupplýsingum vina og ættingja á samfélagsmiðlum og gefur þér ábendingu ef einhver þeirra skyldi nú vera á sama stað á sama tíma erlendis.
Sniðugt fyrir þá sem þrá að hitta sitt fólk. Nú eða hina sem vilja alls ekki hitta ákveðið fólk 🙂
Tripstir fór í loftið fyrir skömmu og er þegar hægt að hala því niður í snjallsímann.







