Eins gott að láta lögreglu í San Antonio á hinni spænsku Ibiza ekki nappa þig með vatnsflösku á ströndinni í sumar. Það mun kosta þig rúmlega hundrað þúsund krónur í sekt.

Í þessum bæ á Ibiza verður hart tekið á öllu drykkjufólki á almannafæri eftirleiðis. Mynd RT

Í þessum bæ á Ibiza verður hart tekið á öllu drykkjufólki á almannafæri eftirleiðis. Mynd RT

Það er ekki aðeins á Mallorca sem yfirvöld hafa fengið aldeilis nóg af drykkjulátum á götum úti að sumarlagi. Á nágrannaeyjunni Ibiza þykir flestum nóg um líka og á einum vinsælum sólarstað hafa menn nú gripið til sinna ráða. Í bænum San Antonio hafa nú tekið gildi lög sem banna alfarið drykkju annars staðar en á börum eða veitingahúsum og framfylgja á banninu af offorsi samkvæmt spænskum fjölmiðlum.

Þetta merkir að óheimilt er að valsa um með flöskur eða glös af neinu tagi og breytir þá engu hvort um bjór eða vatn er að ræða. Sektir geta numið allt að 110 þúsund krónum fyrir brot og ber að greiða á staðnum.

Ástæða þessa eru mikil drykkjulæti sumarmánuðina í bænum en þar hafa sífullir Bretar þótt heldur uppvöðslusamir og leiðigjarnir eins og líka var ástæðan á Mallorca þegar svipað bann var samþykkt af bæjaryfirvölum á Magaluf. Það bann þar enn í gildi.

Líklega heldur Bretinn þó bara í næsta bæ í staðinn og heldur áfram látum sínum þar svo vandamálið er varla leyst.