Það gekk hreint ekki þrautalaust fyrir lögreglu að sjá til þess að nýlegt drykkjubann á djammstaðnum Magaluf á Mallorca væri virt en gærkvöldið var fyrsta skiptið sem banninu var beitt.

Senur á borð við þessa hafa hingað til ekki þótt merkilegar í Magaluf en kannski verður breyting þar á núna.

Senur á borð við þessa hafa hingað til ekki þótt merkilegar í Magaluf en kannski verður breyting þar á núna.

Eins og Fararheill sagði frá í vetur fengu borgaryfirvöld í þessum vinsæla spænska strandbæ nóg af ýmis konar óreglu og óheftri drykkju ungra ferðamanna en lætin slík að Magaluf hefur fengið æði slæmt orð á sig frá öðrum en djammglöðum ungmennum.

Ákveðið var að setja drykkjubann utandyra frá klukkan tíu á kvöldin og fram til sex á morgnana og í vikunni reyndi fyrsta sinni á bannið. Breska blaðið Guardian segir svo frá að þrátt fyrir mikið lið lögreglu hafi drykkja og læti verið talsverð þrátt fyrir bannið.

Það er sennilega eitthvað sem færist til betri vegar með tíð og tíma því það eru engar smásektir sem fólk þarf að greiða ef einhver drekkur utandyra á þessum tíma eða er með einhvers konar læti önnur. Lágmarkssektin er kringum 110 þúsund krónur fyrir drykkju og hvorki meira né minna en 466 þúsund krónur sé einhver tekinn við að pissa utandyra eða sýna meira hold en eðlilegt getur talist. Hætt við að slík sekt setji örlítið strik í reikninginn hjá flestum.

Á hinn bóginn er rót vandans kannski sú að á börum í Magaluf yfir sumartímann eru drykkjutilboð sem fáir frá norðurhluta Evrópu gætu hafnað. Margir stærri barir bjóða til dæmis tveggja tíma ótakmarkaða drykkju fyrir svo mikið sem sjö evrur eða rétt rúmlega þúsund krónur.