Ritstjórn Fararheill hefur lengi haft varann á sér varðandi „samkeppni“ þegar um tvö íslensk fyrirtæki er að ræða. Nægir þar að benda á Samskip og Eimskip sem þykjast elda grátt silfur en hafa verið í baktjaldamakki og samkrulli um áraraðir.

Alltaf ljúft að dvelja undir sólinni í Alicante. En þangað er mun dýrara að fljúga með innlendum flugfélögum.
Nú er aftur að sannast að tvö „innlend“ fyrirtæki í samkeppni eru í raun og veru ekki í samkeppni. Til að sanna það þarf þriðja aðilann og hann erlendan.
Fararheill greindi frá því fyrir allnokkru að Wow Air og Primera Air fengju nú loks samkeppni til þess staðar á Spáni sem er líklega vinsælasti áfangastaður Íslendinga í því landi: Alicante. Þar á ferð norska lággjaldaflugfélagið Norwegian sem hefur komið auga á það sem við og lesendur okkar hafa vitað lengi; að fargjöld til Alicante eru og hafa verið rugldýr um alla tíð. Þar sóknarfæri og samkvæmt úttekt Fararheill er það líka Norwegian sem býður okkur LÆGSTA verð á flugi til Alicante í allt sumar.
Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi töflu. Við leituðum að lægsta fargjaldi aðra leið til Alicante í júní, júlí og ágúst hjá þessum þremur aðilum og hugsandi lesendum ætti ekki að koma á óvart að með Norwegian er að lágmarki 25% ódýrara að fljúga þá leiðina en með Wow Air og minnst 33% ódýrara en Primera Air býður okkur.
Athugið að hér er aðeins um AÐRA LEIÐ að ræða. Sé verðmunur á fargjöldum erlends flugfélags og íslenskra flugfélaga að lágmarki 25 prósent má heimfæra það á bakaleiðina líka. Og hvern munar ekki um tólf til fimmtán þúsund krónur fyrir sömu vöru?
* Úttekt gerð kl. 21 þann 7. apríl 2017 hjá öllum aðilum samtímis. Lægsta verð með tösku aðra leið til Alicante. Hafa skal hugfast að verðbreytingar eru örar hjá flugfélögunum og eins er misjafnt verð eftir verðhegðun viðkomandi.








