Einhverjar bestu fréttir fyrir blanka sólþyrsta Íslendinga hafa litið dagsins ljós. Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian ætlar að bjóða landanum beint flug milli Keflavíkur og Alicante á Spáni. Og auðvitað að súperlágu verði líka 🙂

Við þurfum ekki mikið lengur að sætta okkur við okurprísa Wow Air eða Primera Air til Alicante. Nú kominn alvöru keppinautur 🙂

Norwegian hefur séð það sem gamla fólkið hjá Icelandair hafa enn ekki komið auga á; nefninlega að það er bullandi áhugi hjá Íslendingum að komast til Alicante á Spáni 24/7/365. Nægilega mikill áhugi til að það gæti fært flugfélagi hagnað í bækur.

Við þurfum að sætta okkur við Primera Air annars vegar eða Wow Air hins vegar ef við viljum til Alicante og feit verðbólga virðist vandamál hjá báðum flugfélögum. Um leið og fyrsti maður bókar hækkar fargjaldið umsvifalaust úr tíu þúsund krónum í 30 þúsund virðist vera.

Lægsta fargjald sem Fararheill finnur þegar þetta er skrifað hjá Norwegian frá Keflavík til Alicante og heim aftur næsta sumar eru heilar 23.300 krónur báðar leiðirnar. Engum á að koma á óvart að það er sirka helmingi lægra verð en finnst hjá Wow Air eða Primera Air og ágætt að muna líka að handfarangur fylgir frítt með hjá Norwegian meðan óheimilt er að taka með bindisnælu hjá Wow Air án þess að borga aukalega.

Frábærar fréttir fyrir sólþyrsta Íslendinga 🙂