Rákumst á þessa ágætu auglýsingu frá Heimsferðum Andra Más Ingólfssonar á fésbókinni þetta kvöldið. Þriggja nátta ferð til hinnar ljúfu Prag í Tékklandi niður í 59.995 krónur á kjaft sem sagt er vera 25 prósenta afsláttur af hefðbundnu verði!!!

Barasta ágætt tilboð hjá Heimsferðum til Prag. Ef það væri þá í boði það er að segja… Skjáskot

Ekkert amalegt við að hvíla lúin bein í Prag nokkra daga í lok apríl þegar vorið er sprungið út þar og að vakna til lífs hér heima.

Auglýsingar á fésbókinni eru þeim eiginleikum gæddar að færa áhugasaman beint á heimasíðu viðkomandi fyrirtækis vilji fólk vita meira.

Og viti menn! Þar finnst ekki stafur og hvað þá ferð til Prag niður í 59.995 krónur á mann.

Þaðan af síður kemur fram hvert hafi verið upprunalegt verð á þessari ferð fyrst auglýstur er 25 prósenta afsláttur.

Bæði tilboðið auglýsta og afsláttarkjör skal tilgreina í tilfellum sem þessum samkvæmt neytendalögum. Sömu neytendalögum og eigandi Heimsferða hefur ekki gefið mikið fyrir um árabil.

Flug +gisting í Prag á vef Heimsferða. Ekkert hér á 59.995 krónur og meðalverð á skottúrnum nær 90 þúsund krónum á kjaft. Sem er hreint okur.

Lægsta verð á þessari „59.995 króna“ ferð til Prag reynist við athugun vera 64.716 krónur að því er fram kemur á vef Heimsferða. Er þá ennþá 25 prósenta afsláttur? Eða er hefðbundið lágmarksverð á slíkri ferð hjá ferðaskrifstofunni rétt tæpar 75 þúsund krónur á kjaft?

Kannski það. Ólíklegt þó sökum þess að Heimsferðir býður örsjaldan ferðir til Prag. Er þetta 25 prósenta afsláttur miðað við svipaða ferð fyrir ári? Eða við hvað miðast þessi afsláttur eiginlega? Er þetta tóm blekking?

Hugsast getur að það hótel sem Heimsferðir bauð upp á í 59.995 króna auglýsingu sinni sé einfaldlega uppselt og við því fátt að segja annað en að það er ólöglegt að birta slíka auglýsingu nema fyrirtækið geti staðið við stóru orðin.

PS: það er stutt í að Czech Airlines bjóði upp á reglulegt áætlunarflug milli Keflavíkur og Prag og þar hægt að finna fargjöld fram og aftur undir 40 þúsund krónum. Hótel í borginni eru mjög ódýr á evrópskan mælikvarða og með hjálp bókunarvélar okkar hér að neðan má vel njóta sams konar ferðalags og Heimsferðir bjóða undir hundrað þúsund krónum samtals á par eða hjón.

Ekki láta plata þig 😉