Ung eða gömul, mjó eða feit, hvít eða svört. Öll þurfum við að komast frá endrum og sinnum. Fyrir þá sem er slétt sama um gæði hótela svo lengi sem rúmið er sæmilegt, sundlaug nærri og sól á lofti er hægt að gera vitlausari kaup en ferð til Kanarí með Travelwasp.

Ströndin við Puerto Rico á Kanarí. Ekki frábært en í það minnsta ódýrt. Mynd Matti Mattila

Ströndin við Puerto Rico á Kanarí. Ekki frábært en í það minnsta ódýrt. Mynd Matti Mattila

Sú breska ferðaskrifstofa er að bjóða, á tilteknum dagsetningum í september og október, ferðir frá Gatwick til Kanarí og vikudvöl á sæmilegu hóteli með engu niður í 38 þúsund krónur á kjaft miðað við tvo saman. Detti menn niður á tilboðsfargjöld til og frá London er þetta sérdeilis ágæt og ódýr leið til að lengja aðeins í sumrinu.

Hótelið sem í boði er mun ekki vera upp á mjög marga fiska en þriggja stjörnu þó. Ekkert er innifalið sem ritstjórn Fararheill þykir reyndar kostur því það þýðir að fólk verður að spóka sig strax við hanagal og oftar en ekki eru ágætir innlendir veitingastaðir í kring þar sem morgunverður fæst fyrir lítið. Þá eru þriggja stjörnu hótel yfirleitt ekki að bjóða mikið merkilegri morgunverð en hvítt brauð, egg og billegt kaffi hvort sem er.

Staðsetningin er aðeins fjarri Íslendingaslóðum á Ensku ströndinni því hótelið er staðsett í Puerto Rico sem er aðeins til vesturs frá Maspalomas. Staðurinn engan veginn mjög heillandi en þrái fólk sól á kropp í október fæst það ekki á lægra verði.

Tilboð Travelwasp hér.