Óhætt er að tala um sprengingu hjá Fararheill þegar talið berst að óskum lesenda um aðstoð eða hjálp við skipulagningu ferðalaga en við höfum ekki farið leynt með að oftast nær er hægt að skoða heiminn á mun lægra verði með þeim hætti.
Það er mætavel skiljanlegt að sumir veigri sér við að taka skrefið og skipuleggja eigin ferðalög og ennfremur eðlilegt að spurningar vakni sem ekki fást svör við svo glatt.
Við hjálpum öllum sem þess óska en vildum aðeins koma á framfæri að við erum bara fjögur á bak við Fararheill og óskirnar nú skipta hundruðum. Við reynum okkar besta en stranglega bannað að hlaupa í fýlu ef okkur tekst ekki að svara öllum á augabragði 🙂








