Raunin hefur verið sú undanfarin ár og áratugi að ætli fólk sér til framandi staða á borð við Balí í Indónesíu gegnum innlendar ferðaskrifstofur hefur hálf milljón króna á mann þótt vera tiltölulega vel sloppið. En nú er öldin önnur.

Hið fræga Tanah Lot á Balí í Indónesíu er ekkert minna en nauðsyn að heimsækja sé fólk á annað borð á þvælingi hér. Mynd Mikaku

Hið fræga Tanah Lot á Balí í Indónesíu er ekkert minna en nauðsyn að heimsækja sé fólk á annað borð á þvælingi hér. Mynd Mikaku

Breskt útibú ferðaskrifstofunnar Kuoni býður nú sértilboð á tíu nátta ferðum til Balí frá London, Edinborg eða Manchester í Englandi en til þeirra allra er flogið héðan flesta daga vikunnar. Tilboðið gildir um ferðir á tilteknum dagsetningum frá nóvember og fram í febrúar en þó ekki yfir annatíma um jól og áramót. Verðmiðinn er aðeins 162 þúsund krónur á mann miðað við miðgengi dagsins.

Gist er á ágætu hóteli við Sanur ströndina en það var strönd númer eitt, tvö og þrjú á árum áður þegar ferðamenn fóru fyrst að flykkjast til eyjarinnar í massavís. Aðeins hefur fallið á ljómann síðan en engu að síður tilvalinn staður til að njóta lífsins meðan kuldi og trekkur hrellir ættingja og vini heima á Íslandi.

Með góðum fyrirvara er hægt að finna flug til Bretlands allt niður í 25 þúsund krónur á mann fram og aftur og þannig hægt að njóta Balí í góðu yfirlæti fyrir 370 til 380 þúsund krónur samtals fyrir tvo. Það teljum við hjá Fararheill vera skrambi gott.

Tilboð Kuoni hér.