Forráðamenn sjálfskipaðs flugfélags fólksins eru við sama heygarðshornið. Auglýsa lág fargjöld til nokkurra eðalfínna áfangastaða en fara svo fram á að viðskiptavinir eyði drjúgum tíma að finna þessar sömu tilboðsferðir.
Sérhönnuð vefvél Wow Air er um það bil ein sú allra versta sem finnst. Aðeins ein dagsetning finnst alla jafna við leit að fargjöldum svo að fólk sem leitar að lægsta verði má fletta tímunum saman til að komast að niðurstöðu.
En þar sem þjónustulund er Fararheill ríkari í blóð borin en „flugfélagi fólksins“ listum við hér að neðan öll 9.900 króna flugtilboð Wow Air til Parísar. Fólk skal hafa í huga að raunverð er 10.895 krónur því flugfélag fólksins heimtar bókunargjald í ofanálag.
Á þessum dagsetningum finnast fargjöld á 10.895 krónur aðra leið til Parísar með Wow Air í haust og vetur. Miðað við leit kl. 11 þann 21. maí 2014.
SEPTEMBER: 24., 29.
OKTÓBER: 01., 06., 08., 10., 13., 15., 17., 22., 24., 29.
NÓVEMBER: 03., 05., 07., 12., 14., 17., 19., 21., 24., 26., 28.
DESEMBER: 01., 03., 05.
Svo höfum við sett saman þennan líka aldeilis frábæra vegvísi um París ef þig vantar upplýsingar.








