Tíðindi

Kannabisbann í Maastricht

  11/10/2011desember 6th, 2014No Comments

Umdeilt kannabisbann á ferðamenn í Hollandi hefur tekið gildi í fyrstu borg þess ágæta lands og geta nú aðrir en Þjóðverjar, Belgar og Hollendingar ekki keypt sér jónu lengur í borginni Maastricht.

Er þetta fyrsta borg landsins þar sem bannið tekur gildi en hollensk stjórnvöld ákváðu í vor að banna sölu á fíkniefnunum til ferðamanna eins og Fararheill greindi þá frá.

Er þar verið að tala um hinar víðfrægu kannabiskaffibúllur sem víða finnast í borgum Hollands og hafa notið vinsælda þeirra sem slík efni reykja. Er Amsterdam þeirra þekktust en bara í þeirri borg einni er að finna rúmlega 80 slíkar sjoppur sem sérhæfa sig í sölu á kannabisefnum í bland við kaffi og kleinur.

Maastricht sem stendur nálægt landamærum Hollands við Þýskaland og Belgíu hefur verið sérstaklega vinsæl hjá Belgum og Þjóðverjum sem skjótast gjarnan yfir í smók og hverfa síðan aftur til síns heima. Er talað um allt að sex þúsund stundi þetta á hverjum einasta degi.

Og því vekur furðu að borgaryfirvöld í Maastricht eru ekki að banna sölu kannabis til Belga né Þjóðverja. En aðrir þegnar verða að gera svo vel að súpa bjór eða gera eitthvað annað í borginni en fá sér jónu.