Tíðindi

Banna ferðamenn á kaffihúsum

  03/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Heimur versnandi fer hugsa eflaust einhverjir nú þegar hollensk yfirvöld hafa tilkynnt að frá og með næstu áramótum verði lagt bann við að erlendir ferðamenn heimsæki hin frægu hollensku „kaffihús“ sem selja þó minnst af kaffi og meira af hassi og marijúana.

Kaffihúsin hafa um áraraðir verið aðdráttarafl fyrir neytendur og ekki síður forvitna gesti erlendis frá en nokkurn fjölda slíkra verslana má finna í öllum helstu borgum Hollands.

Gefst gestum þar tækifæri að reykja nægju sína af marijúana og öðrum efnum sem víðast hvar annars staðar eru stranglega bönnuð. Verða því kaffihúsin eftir áramótin aðeins opin fólki með sérstaka passa en aðeins íbúar í landinu geta orðið sér úti um slíka passa.

Búist er við að ferðamannabannið verði almennt komið í gagnið alls staðar í Hollandi um mitt næsta ár og því seinustu forvöð að drífa sig fyrir þá sem upplifa vilja þessa hlið á Hollandi.

Þó á Hæstiréttur Hollands eftir að taka málið fyrir en hætt er við að ferðamönnum til landsins fækki gangi áætlanirnar eftir.