Tíðindi

Mun hærra eldsneytisgjald hjá Icelandair

  03/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Icelandair rukkar hvern farþega sinn um mun hærra eldsneytisgjald en samkeppnisaðilinn Iceland Express. Munar þar töluverðum upphæðum á hvern farþega þrátt fyrir að vélar Icelandair séu nýrri og eigi að nýta eldsneyti betur.

Kemur þetta í ljós við skoðun á aukagjöldum vegna eldsneytiskostnaðar hjá flugfélögunum tveimur en alllangt er síðan tekið var upp sérstakt slíkt gjald hérlendis.

Þannig greiða farþegar Icelandair til Evrópu 8.500 krónur í eldsneytisgjaldið meðan farþegar Iceland Express greiða 6.900 krónur. Það kann ekki að hljóma mikið en með 200 farþega um borð að meðaltali er umframhagnaður Icelandair 320 þúsund krónur.

Munurinn eykst töluvert í viðbót varðandi flugferðir til Bandaríkjanna. Þar leggur Iceland Express 11.200 króna eldsneytisgjald á hvern farþega meðan gjald Icelandair nemur 15.100 krónum. Munar þar litlum 3.900 krónum. Aukahagnaður Icelandair miðað við 200 farþega í ferð til Bandaríkjanna er þannig tæplega ein milljón króna.

Nú er flugfélögum ekki skylt að gefa upp raunkostnað sinn við eldsneytiskaup svo farþegar eru engu nær um hvort flugfélögin eru að græða á eldsneytisgjaldinu eður ei. Sökum þess að flugfélögin breyta eldsneytisverðinu ekki oft eru líkur á að svo sé því olíuverð breytast daglega og þegar þetta er skrifað hefur verð á þotueldsneyti lækkað um átta prósent síðasta mánuðinn samkvæmt tölum IATA.