Forráðamenn Icelandair hafa hætt við kaup á Boeing Dreamliner vélum sem pantaðar voru fyrir nokkrum árum síðan og selt frá sér kaupréttinn á þremur af fjórum slíkum vélum en flugfélagið átti að vera eitt þeirra fyrstu í heiminum sem slíkar vélar tók í notkun.
Er reynsluflugum þessarar nýju þotu Boeing loks lokið töluvert á eftir áætlun og eiga fyrstu vélarnar þessarar tegundar að hefja áætlunarflug með haustinu. Á Icelandair þó enn inni eina slíka vél af þeim fjórum er pantaðar voru en óljóst er hvort flugfélagið hyggst nýta sér kauprétt á henni.
Dreamliner vélin hefur það framyfir aðrar þotur að vera bæði hraðfleygari en sambærilegar þotur Airbus eða annarra þotuframleiðenda en þar að auki er eldsneytisnýting Dreamliner mun betri en fyrri véla Boeing.
Skiptir það eðlilega verulegu máli nú þegar samkeppni flugfélaga hefur aldrei verið meiri og ekki er búist við að heimsmarkaðsverð á eldsneyti lækki mikið í fyrirsjáanlegri framtíð.
Þrátt fyrir þetta er flugfloti Icelandair enn tiltölulega ungur og töluverðum fjárhæðum verið eytt til að uppfæra þoturnar til nútímahorfs með betri sætum og afþreyingarkerfum.






