Sá einstaklingur sem gleymir að skila þeim gjaldeyri sem hann hefur á sér við komuna til landsins gæti átt sektir og jafnvel fangelsi yfir höfði sér verði nýtt frumvarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, að veruleika.
Stendur til að herða mjög á reglum um gjaldeyri umfram það sem þegar er. Hefur áður komið fram að takmarkað verður það magn gjaldeyris sem hver og einn getur tekið með sér erlendis. Þá verður sá hinn sami að sanna að hann eigi það fé.
En í frumvarpinu kemur fram að ferðamenn þurfi að skila öllum ónotuðum gjaldeyri við komuna til landsins en ekkert kemur fram um hvernig því eftirliti verður háttað né heldur hvaða viðurlög eru við að gleyma evrunum tíu í vasanum.
Óttast Neytendasamtökin að þar sem ekkert er tæpt á viðurlögum í frumvarpinu geti yfirvöld í raun ráðið upphæðum sekta og eða jafnvel dæmt menn í fangelsi fyrir slík brot.






