Samskiptaforritið Twitter hefur ekki enn náð mikilli útbreiðslu hérlendis þó víða erlendis sé meiri uppgangur á Twitter en Facebook. Mörgum finnst allt slíkt enda tímaeyðsla en hvað er slík „tímaeyðsla“ getur sparað þér stórfé á ferðalögum?
Það er nefninlega orðin raunin með Twitter vegna þess að fjölmargar erlendar ferðaskrifstofur, flugfélög og hótel nota orðið Twitter til að auglýsa tilboð sín. Er það vegna þess að Twitter er fljótlegasta leiðin til að koma skilaboðum áleiðis í rauntíma þegar lítill er fyrirvarinn.
Er því ágætt að hafa hugfast að allt að viku fyrir áætlað ferðalag getur það borgað sig að fylgjast með á Twitter þó ekki nema með öðru auganu.
Engin þörf er á skráningu. Farðu á heimasíður Twitter, www.twitter.com, og leitaðu að: travel deals, travel discounts, deals + travel, hotel deal og svo framvegis. Niðurstöðurnar gætu komið á óvart og sparað vænar fúlgur í leiðinni.






