Eingöngu nítján prósent Íslendinga viðurkenna að hafa stolið hlutum af hótelum erlendis samkvæmt könnun Fararheill.is. 58 prósent þátttakenda segjast aldrei hafa dottið slíkt í hug.
Forvitnaðist Fararheill hjá lesendum sínum hvort þeim hefði einhvern tíma komið til hugar að stela hlutum af hótelum eða gististöðum erlendis en slíkt er töluvert vandamál.
Stór slík könnun sem gerð var í Bretlandi í vor sem leið sýndi töluvert aðra niðurstöðu; nefninlega þá að 52 prósent breskra ferðamanna hafa gripið eitthvað með sér ófrjálsri hendi af hótelum og gististöðum. Sérstaklega þóttu inniskór og baðsloppar vel þess virði að taka með jafnvel þótt merktir væru viðkomandi gististað.
En Íslendingar eru heiðvirðari en Bretar ef marka má þá 173 sem þátt tóku í vefkönnun Fararheill. Aðeins 19 prósent segjast hafa tekið hluti með sér af hótelum ófrjálri hendi, 23 prósent sögðust hafa dottið það í hug en ekki framkvæmt en 58 prósent sögðust aldrei hafa komið slíkt til hugar.
Þakkar ritstjórn Fararheill.is kærlega fyrir þátttökuna. Niðurstaðan engan veginn vísindaleg enda til gamans gert. Í nýrri könnun á vefnum er nú spurt hvaða hitastig fólki þyki best á ferðalögum erlendis.






