Varla er flett dagblaði þessi dægrin án þess að hinir og þessir skörungarnir í ferðabransanum heimti að ríkið lagi hitt og þetta sem aflaga hefur farið. En öllum virðist slétt sama um alvarlega slælega þjónustu stærsta flugfélags landsins.

Mogensen mokar inn seðlum en í þjónustulegu tilliti er flugfélagið hans handónýtt. Skjáskot
Á fimmtudaginn var sat einn úr ritstjórn í „mathöllinni“ á Hlemmi í miðborg Reykjavíkur. Sú vart búin að taka fyrsta bitann af samlokunni þegar sex erlendir einstaklingar á næsta borði hófu að ræða um Wow Air. Tveir frá Svíþjóð, einn frá Bretlandi og þrír frá Frakklandi. Öll höfðu þau afar miður góða sögu að segja af flugfélagi milljarðamæringsins Skúla Mogensen. Svo slæma að Frakkarnir hugðust reyna að fá miðann heim aftur endurgreiddan og fljúga með öðrum.
Engum sögum fer af nánast engri þjónustu Wow Air í fréttamiðlum landsins. Allir sáttir við að Wow Air sé orðið risastórt flugfélag og flytji nú fleiri til og frá landinu en Icelandair. Ekki einn miðill fyrir utan okkur dirfist að minnast á verri en hörmulega þjónustu flugfélagsins ef eitthvað bjátar á. Og eitthvað bjátar á hjá Wow Air á fimm mínútna fresti.
Nei, best að sleikja rass herra Mogensen í von um auglýsingar. Skítt með ferðamennina. En svo er flett á næstu síðu þar sem sveitarstjórinn á Raufarhöfn fær heilsíðu þar sem hann er æfur yfir litlum fjármunum til að setja upp klósett á tjaldsvæðinu svo ferðafólk geti nú gert þarfir vandræðalaust.
Kallast þetta ekki að byrja á öfugum enda?
Við höfum áður sagt lesendum frá að Wow Air er langlélegasta lággjaldaflugfélag sem flýgur til og frá Íslandi samkvæmt tölum Skytrax. Wow Air fær þrjár stjörnur meðan næstlélegasta flugfélagið fær sex stjörnur af tíu mögulegum.
Við höfum áður sagt lesendum að af öllum erlendum flugfélögum sem fljúga til Bandaríkjanna er Wow Air í öðru sæti hvað kvartanir varðar.
Við höfum áður sagt lesendum frá að langflestar kvartanir farþega til Samgöngustofu á liðnu ári voru tilkomnar vegna Wow Air.
Við höfum áður sagt lesendum að til er sérstök Twitter-grúppa þar sem varað er við Wow Air.
Og nú getum við greint frá að stofnuð hefur verið fésbókargrúppan Wow Air – Wow Air Never Again. Sú er tæplega vikugömul en þegar eru tæplega 200 fylgjendur á síðunni.
Er ekki ráð að draga flugrekstrarleyfi Wow Air til baka? Við hér erum stolt af öllu á þessu landi og það með réttu. En milljarðamæringurinn Mogensen nýtir sér það til að hrúga hundruðum þúsunda til landsins og gefur skít í liðið þegar eitthvað bjátar á.
Við skömmumst okkar hræðilega fyrir Skúla og Wow Air…







