Skúli að bulla eitthvað við blaðamann. Flugfélagið hans er það næstversta hvað kvartanir snertir í Bandaríkjunum.

Markaðsmaður ársins, Skúli Mogensen, getur nú farið að halda enn eitt partíið. Flugfélag hans, Wow Air, er annað versta erlenda flugfélag í Bandaríkjunum.

Mogensen þykir móðins hjá fjölmiðlum á klakanum hvers fjölmiðlamenn bera óttablandna virðingu fyrir ríku fólki og því þarf hinn danskættaði aldrei að svara hörðum spurningum hérlendis. Hann þarf aðeins að brosa á partímyndum Smartlands Moggans.

Sem er miður því ekki aðeins er þjónusta Wow Air fyrir neðan hellur hér heima heldur nær Wow Air þeim stórmerka áfanga, miðað við smæð flugfélagsins, að vera annað versta erlenda flugfélag Bandaríkjanna árið 2017. Annað versta í merkingunni að vera það flugfélag sem næstmest var formlega kvartað yfir til stjórnvalda.

Það má glöggt sjá á meðfylgjandi töflu frá samgönguráðuneyti Bandaríkjanna sem ólíkt íslenskum stjórnvöldum heldur grimmt utan um alls kyns tölfræði í fluginu og birtir reglulega lista yfir þau flugfélög innlend sem erlend sem flestir kvarta yfir.

Á nýliðnu er það hið íslenska Wow Air sem flestir kvarta formlega yfir ef frá er talið flugfélagið Virgin Australia. Litla Wow Air, sem flýgur aðeins nokkrum sinnum vikulega vestur um haf skákar stórvesírum á borð við Air France, British Airways, KLM, Lufthansa, Norwegian, Air India, China Airlines og yfir 60 öðrum erlendum flugfélögum og fer létt með eins og lesa má um hér.

Fararheill vill óska Mogensen til lukku með árangurinn. Vonandi skákar Wow Air Virgin Australia á þessu ári svo við fáum nú gullið einu sinni ….