Af þeim átta lággjaldaflugfélögum sem fljúga reglulega til og frá Íslandi þykir Wow Air standa sig verst. Flugfélag Skúla Mogensen deilir botnsætinu með Vueling.

Stórar hugmyndir eiganda Wow Air en þjónusta flugfélagsins fyrir neðan flestar hellur.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum vill Skúli Mogensen ná heimsyfirráðum í flugheimum eða svo gott sem. Hann vill verða heimsmeistari meðal lággjaldaflugfélaga og í leiðinni gera Ísland að heimsbækistöð fyrir flug í allar áttir.

Ritstjórn Fararheill setur ekkert út á stórar hugmyndir. Það bara flott að skjóta hátt og fátt sem Skúli hefur tekið sér fyrir hendur hefur mistekist hin síðari ár. Svo njótum við lýðurinn góðs af ef allt gengur upp hjá karli. Eða hvaða Íslendingur hugsar ekki gott til glóðar ef héðan verður einn daginn beint flug til Asíu?

En heldur mikið kapp er kannski hlaupið í Skúla og takmörkuð forsjá. Ekkert fyrirtæki rís endalaust og allra síst ef þjónustustig gagnvart viðskiptavinum er fyrir neðan hellur. Það hefur Fararheill ítrekað bent á að er stór akkilesarhæll hjá Wow Air og undir það taka margir þeir sem tjá hug sinn á flugeinkunnavefnum Skytrax.

Þar er tekið saman meðaltal varðandi sætisþægindi, þjónustu flugliða, mat og drykk um borð, afþreyingarmöguleika, þjónustu fyrir og eftir flug og að síðustu hvort flugið hafi verið þess virði fyrir verðið sem greitt var. Lægsta einkunn fyrir hörmungarþjónustu er 1 og sú hæsta fyrir toppþjónustu er vitaskuld 10. Skytrax þykir fremstur jafningja þegar kemur að einkunnagjöf notenda fyrir flugfélög og flugvelli.

Við samanburð á öllum þeim lággjaldaflugfélögum sem reglulega fljúga hingað til lands þykir Wow Air daprast allra og deilir botnsætinu með Vueling frá Spáni eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Ekki er ólíklegt að einkunnir eigi eftir að lækka enn meira nú þegar nákvæmlega ekkert má hafa meðferðis frítt þegar flogið er með Wow Air.