Það skýtur ekki skökku við en kemur þó á óvart að finna að einn sá hópur sem finnst þegar leitað er að flugfélaginu Wow Air á samskiptasíðunni Twitter er grúppa sem kallast WowAir Scams. Þar lýsa viðskiptavinir slæmri reynslu sinni af flugfélaginu.

Varað við Wow Air á Twitter. Eina lággjaldaflugfélagið sem nýtur þess „heiðurs.“ Skjáskot

Grúppan sú vissulega hvorki stór né veigamikil en þrátt fyrir töluvert ítarlega leit hjá öðrum vinsælum evrópskum lággjaldaflugfélögum virðist ekkert þeirra „státa“ af sérstakri svindsíðu eins og Wow Air.

Verður það að teljast einstæður árangur því flugfélög á borð við Airberlin, easyJet og ekki síst Ryanair hafa á köflum valdið mikilli úlfúð í sínum heimalöndum.

Þetta kemur okkur hér hjá Fararheill ekkert á óvart. Wow Air fær ótrúlega lágar og lélegar einkunnir fyrir þjónustu á velflestum samfélagsmiðlum heimsins. Svo mjög kvað hart að kvörtunum að flugfélagið lokaði alfarið á viðskiptavini sína á fésbók svo eitt dæmi sé tekið. Þá fékk Wow Air lægstu einkunn fyrir þjónustu meðal allra lággjaldaflugfélaga sem fljúga hingað til lands eins og við bentum á fyrr á árinu.

Fátt WOW við það!