Fjögurra stjörnu gisting í London með skömmum fyrirvara? Alla jafna væri súper að sleppa með 30 þúsund króna reikning per nótt enda meðalprís á fjögurra stjörnu hótelum í borginni síðasta ár litlar 34 þúsund krónur. Þó ekki ef þú brúkar fimmfaldan hótelbókunarheimsmeistara gegnum Fararheill 🙂

Og hvar ert þú að bóka gistingu…
Sjö þúsund kall. Sú upphæð dugar þér ekki til að fá skitna koju í febrúar við hlið tólf ókunnra einstaklinga á Kex hosteli í Reykjavík. Upphæðin rétt slefar fyrir samloku í Leifsstöð.
Sú upphæð dugar þér heldur ekki almennt til að negla fjögurra stjörnu gistingu í höfuðborg Englands enda sú dýr með afbrigðum.
En þú ert heldur ekki að leita að gistingu gegnum Fararheill. Þar er nefninlega orðið mjög algengt að hótel og gististaðir sem sjá fram á tóm herbergi með litlum fyrirvara snarlækki verð á gistingu. Það er jú enda góð latína að betra er að fá lítið af einhverju en ekkert af engu…







