Ritstjórn hefur fengið þrjár fyrirspurnir þennan daginn er varða réttindi ferðafólks við verkföll. Hluti starfsfólks Leifsstöðvar er í verkfalli vegna lágra launa sem hefur haft tafir í för með sér.

Tafir vegna verkfalla opinberra starfsmanna skapa ekki bótakröfur til handa farþegum.

Tafir vegna verkfalla opinberra starfsmanna skapa ekki bótakröfur til handa farþegum.

Skemmst er frá að segja að verkföll opinberra starfsmanna eins og nú er í gangi skapa ekki grundvöll fyrir bótakröfum af neinu tagi. Það orsakast af því að flugfélögin hafa ekkert vald yfir opinberum starfsmönnum og því flokkast það sem „ófyrirsjáanlegar aðstæður.“ Annað væri upp á teningnum ef um væri að ræða starfsfólk flugfélaga. Þá er bótaskylda strax til staðar.

En það þýðir ekki að flugfélögin séu stikkfrí. Þeim ber, sem fyrr, að bjóða veitingar og eða gistingu ef svo ber undir, þegar flug tefst fram úr hófi og breytir þá engu hvort um opinbert verkfall er að ræða eður ei.

Vænlegast ef bíða þarf lengur en fyrirsjáanlegt var að draga djúpt andann og tæma hugann. Fátt er leiðinlegra en leggja út í ævintýri í fýlu eða reiðiskasti. Og líka skiljanlegt að opinberir starfsmenn vilji hærri laun. Það lifa jú fáir gólfstarfsmenn af þeim krónum sem ríkið skammtar þeim fyrir vinnu.