Rúmlega átján mánuðum eftir eitt mesta og leyndardómsfyllsta flugslys sögunnar, hvarf malasísku vélarinnar MH370 af ratsjám og síðar brotlendingu á miðju Indlandshafi, kann loks að vera komin fram hugsanleg skýring á slysinu: Farmur vélarinnar.

Þúsund kenningar um hrap MH370 hafa komið fram en fáar jafn líklegar og þessi.
Ekki var um annað talað í flugheimum og fjölmiðlum í byrjun mars 2014 en stórundarlegt brotthvarf flugs MH370 með 239 farþega um borð. Kenningar fræðimanna og leikmanna hrúguðust upp og lengi vel var talið líklegt að um hryðjuverk hefði verið að ræða.
Þó fátt annað hafi komist að í fjölmiðlum vikum saman eftir slysið hafa fáir sýnt því áhuga síðan og sá sem var að súpa Pina Colada á eyðieyju í marsmánuði 2014 hefur sennilega enga hugmynd um að slysið átti sér stað.
Flak vélarinnar liggur á hafsbotni í Indlandshafi og brak úr vélinni hefur litlar upplýsingar veitt rannsóknaraðilum. En nú hefur minnst einn fjölmiðill reynt að kafa ofan í málið og hugsanlegar orsakir slyssins. Samkvæmt þeirri rannsókn er ekki fráleitt, eða í það minnsta ekki hægt að útiloka, að farmur vélarinnar hafi orsakað hrap hennar.
Það er skýring sem allnokkrir sérfræðingar sem vefmiðillinn Daily Beast ræðir við telja líklega en stór hluti farms MH370 samanstóð af lithíum-rafhlöðum frá bandaríska framleiðandanum Motorola. Sömu tegund rafhlaðna og hafa valdið Boeing miklum vandræðum í Dreamliner vélum þeirra. Slíkar rafhlöður eru svo pakkaðar af orku að hefðbundin eldvarnarkerfi farþegavéla hafa ekki undan ef þær springa eins og komið hefur fyrir allnokkrum sinnum í Dreamliner vélum Boeing. Eina leiðin sem Boeing fann til að bjarga málum var að pakka rafhlöðunum inn í efni úr hinu skothelda kevlar til að ráða bót á vandamálinu.
Það er hins vegar ekkert kevlar að finna í farmrými hefðbundinna farþegavéla á borð við MH370. Né nokkuð annað efni sem ver vélina gegn sérstaklega eldfimum efnum eins og eru í lithíum-rafhlöðum.
Forvitnileg kenning sem ekki er hægt að skjóta út af borðinu ólíkt mörgum öðrum kenningum sem fram hafa komið. Athyglisvert líka að hvergi hafa flugmálayfirvöld bannað flutning lithíum-rafhlaðna í farþegaflugi með formlegum hætti.
Nánar hér á Daily Beast.







