Ritstjórn Fararheill hefur gegnum tíðina oftar en ekki gagnrýnt dapurleg tilboð ferðaskrifstofunnar GB Ferða en nú verður einfaldlega að taka hattinn ofan og hneigja sig. Golftilboð þeirra í vor til Hanbory Manor á 109 þúsund krónur er með því betra sem gerist þessi dægrin.
Um er að ræða þriggja daga ferðir til Hanbury Manor hótelsins sem staðsett er í klukkustundar fjarlægð frá London. Hótelið sjálft er fyrsta flokks með góðri heilsulind en í tilboði GB er innifalinn morgunverður og heilir fjórir hringir á samnefndum golfvelli sem er líka fyrsta flokks.
Sé mið tekið af því að tveggja manna herbergi eitt og sér yfir þrjá daga kostar varla undir 70 þúsundum króna og flugið er aldrei ódýrara en 30 þúsund á kjaft má í raun segja að golfið sé ókeypis.
Eini einasti gallinn á tilboði Njarðar í þessu tilfelli er að taka verður leigubíl að hótelinu og frá flugvöllunum fjórum við London verður það ódýrast um níu þúsund og fer hæst í 16 þúsund frá Gatwick flugvelli.
Alls eru tíu ferðir fram á vor í boði.
Heimasíða GB Ferða hér.






