Svo virðist sem ein flugverðlaun sérstaklega séu að ná almennri hylli bæði almennings og ekki síður flugfélaga víða um heim en gegnum tíðina hefur þótt flókið mál að velja besta flugfélag heims. Mörg slík verðlaun hafa verið veitt en mismikið hefur verið haft fyrir slíku og oftar en ekki skipti pólitík máli.
Ekki er það reyndin hjá Skytrax sem hefur nú um tíu ára skeið verðlaunað Besta flugfélag heims og það lítur út fyrir að velflest flugfélög séu farin að taka verðlaun þeirra alvarlega og keppa af alvöru. Líklega vegna þess að þau geta heldur ekki annað því þeir sem taka þátt í valinu eru flugfarþegar sjálfir en ekki einhver stofnun lengst í rassi.
Framundan er tíunda verðlaunahátíð Skytrax sem fram fer í Hamborg að þessu sinni en af því tilefni vildi ritstjórn Fararheill.is rifja upp verðlaunahafa síðasta árs. Töluverða athygli vakti og vekur enn að ekkert þeirra er evrópskt eða bandarískt.
Hafa skal í huga að þeir sem þátt taka meta allt hjá flugfélaginu hvort sem er aðgengi að klósettum eða bið eftir töskum eða úrval tímarita; allt er metið. Samkvæmt þeim tölum voru þessi tíu bestu árið 2009:
- Cathay Pacific Airways (Hong Kong)
- Singapore Airlines (Singapore)
- Asiana Airlines (S.Kórea)
- Qatar Airlines (Katar)
- Emirates (Sameinuðu arabísku furstadæmin)
- Quantas (Ástralía)
- Ethidad Airways (Sameinuðu arabísku furstadæmin)
- Air New Zealand (Nýja-Sjáland)
- Malaysia Airlines (Malasía)
- Thai Airways (Tæland)
Hægt er að taka þátt hvenær sem er á heimasíðu Skytrax hér.






