Óvænt er varla rétta lýsingarorðið yfir niðurstöður skoðanakönnunar Fararheill.is á íslensku ferðaskrifstofunum en þar tóku 369 einstaklingar þátt að þessu sinni. Var spurt hvort ferðaskrifstofurnar væru almennt að standa sig vel og má ljóst vera að þar er pottur brotinn í þúsund mola.
Segja 69,7 prósent þátttakenda að þær séu upp og ofan. 21,2 prósent verða alltaf fyrir vonbrigðum og aðeins níu prósent segja farir sínar erlendis sléttar með ferðaskrifstofunum íslensku.
Með fullri virðingu fyrir ferðaskrifstofunum myndu hausar fjúka í velflestum öðrum starfsgreinum ef innan við tíu prósent viðskiptavina færu ánægðir frá borði.






