Höfuðborg Spánar er á heimsóknarlista margra Íslendinga en ólíkt öðrum áfangastöðum á Spáni er aðeins einn aðili að bjóða beint flug þangað héðan. Það er Icelandair og kemur vart á óvart að fram og aftur pakkinn yfir sumarið 2015 skjagar í hundrað þúsund krónur.

Enginn þarf að punga út hundrað þúsund krónum til að komast til Madríd frekar en hann eða hún vill.

Enginn þarf að punga út hundrað þúsund krónum til að komast til Madríd frekar en hann eða hún vill.

Það er ekki aðeins afleitt verð heldur og fráleitt. Greinilegt má vera að helmings lækkun á eldsneytisverði, stærsta útgjaldalið Icelandair, er nákvæmlega ekkert að skila sér í lækkuðum fargjöldum.

Fararheill til bjargar.

Það er komist strípað til Madríd á annatíma í júlí fyrir 45 þúsund krónur eða svo á mann með eftirfarandi hætti. Wow Air eða easyJet til Gatwick í London. Þegar þetta er skrifað fæst flug fram og aftur með báðum að frátöldum farangri fyrir rétt rúmar 30 þúsund krónur.

Að því loknu yfir á vef Norwegian í Bretlandi sem er þessa stundina að bjóða flug án farangurs til Madríd undir 30 pundum eða rétt rúmlega sex þúsund krónum aðra leiðina. Fram og aftur með þeim kostar 13 þúsund krónur.

Þannig setjumst við á kaffihús við Prado í ljómandi sólskini í spænsku höfuðborginni fyrir 45 þúsund krónur eða tveir fyrir einn miðað við lægstu fargjöld Icelandair.

En Fararheill lætur ekki þar við numið. Við þekkjum Madríd vel og hér má finna vegvísi okkar um borgina. Síðast en ekki síst erum við að bjóða upp á bestu hótelbókunarvél heims og þar finnst lægsta verð á gistingu í Madríd sem annars staðar.

Verði þér að góðu.

[alert]Fararheill reyndar mælir ekkert sérstaklega með dvöl í Madríd í júlí ef út í það er farið. Borgin stendur hátt og fjarri ferskum sjávarvindum og hitinn hér í júlí og ágúst getur skjagað í 40 gráður þegar verst lætur. Ekki kjörhitastig fyrir bleiknefja frá Íslandi.[/alert]