Lesendur okkar vita þegar að hægt er að fljúga frá London til Madríd á Spáni í allt sumar aðra leið fyrir heilar sex þúsund krónur. En fjarri fer að það sé eina borgin sem er í boði á því lágmarksverði frá Gatwick. Það er jafnvel komist alla leið til Króatíu fyrir sex þúsund kallinn.

Drífa sig. Þú lifir aðeins einu sinni mannstu 😉
Slíkt er í boði Norwegian sem nú gerir skurk að komast inn á enska markaðinn og dælir mjög reglulega út tilboðum á borð við sex þúsund króna flug hingað og þangað um álfuna. Ólíkt sumum öðrum lággjaldaflugfélögum eru öll gjöld og skattar innifaldir í verðinu en enginn farangur.
Sætin seljast hratt og vefur Norwegian er níðþungur og seinn en þegar þetta er skrifað er til flug í júní, júlí og ágúst til borga á borð við Róm, Madríd, Barcelóna, Varsjár, Nice og Pula í Króatíu í boði á 30 pund eða 6.070 íslenskar krónur miðað við gengi gærdagsins.
Ekki þarf að bæta við mörgum krónum heldur til að komast til Lanzarote (44 pund ), Tenerife (44 pund ), Búdapest (45 pund) og svo má lengi telja.
Ef þú ætlar að kvarta yfir þessu máttu bara eiga þig 🙂







