Ferðaskrifstofan GB ferðir hefur bætt hinum fræga golfvelli Belfry við golfáfangastaði sína þetta árið enda völlurinn skammt frá Birmingham þangað sem Icelandair flýgur beint.

Hvort kostar ferðin 160 eða 170 þúsund? Skjáskot

Hvort kostar ferðin 160 eða 170 þúsund? Skjáskot

Meira úrval er flott mál fyrir golfara. Verra að milli mála fer á vef ferðaskrifstofunnar hvort pakkarnir kosta 160 þúsund á manninn eða 170 þúsund eins og sjá má á vef þeirra. Neytendalög eru kýrskýr í slíkum tilfellum. Þú greiðir lægsta verð sem auglýst er. Þannig spara tveir saman í herbergi 20 þúsund krónur.

Þrátt fyrir það er 320 þúsund krónur fyrir fjögurra daga golfpakka fyrir tvo í hærri kantinum. Reyndar er um ótakmarkað golf að ræða en það er ekki birta hér langt fram eftir nótt og vellirnir þrír vinsælir svo telja má líklegt að tveir hringir á dag sé hámarkið á hóp.

Fyrir þá sem þykir helst vel í lagt er hægt að kaupa tveggja nátta/tveggja hringja pakka gegnum YourGolfTravel hér allt niður í 30 þúsund krónur. Ekkert bannar að kaupa tvo slíka pakka í einu og þannig fá fjögurra daga gistingu og fjóra hringi fyrir 60 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

Næsta mál er þá að finna flugið og leit á vef Icelandair sýnir að töluvert finnst af sætum fram og aftur kringum 40 til 50 þúsund í vor, sumar og haust. Jafnvel þó einhver aukakostnaður bætist við er með þessum hætti hægt að spila Belfry fyrir rétt rúmar tvö hundruð þúsund krónur fyrir tvo saman.

Nema fólki finnist 120 þúsund krónur enginn peningur er það dágóður sparnaður. Og auðsótt mál að bæta við hring eða hringjum ef rástímar eru lausir.