Eftir því sem næst verður komist er engrar niðurstöðu að vænta í skaðabótamáli hundruð farþega Primera Air gegn flugfélaginu fyrr en seint í ágúst í fyrsta lagi. Það merkilegt fyrir þær sakir að þá er HEILT ÁR liðið frá því að fólkið varð fyrir þeirri ömurlegu reynslu að vera 26 klukkustundir á leiðinni frá Tenerife til Íslands.

Ári eftir hræðilegt flug með Primera Air bíða farþegar ennþá bót mála.
Stjórnarformaður Primera Group, eiganda Primera Air og Heimsferða og viðskiptamaður ársins 2007, Andri Már Ingólfsson, brosir út í bæði þessi dægrin. Ekki aðeins er þras og þref búið að spara fyrirtækinu tugmilljónir króna heldur og er það langt um liðið að engir fjölmiðlar hafa lengur áhuga á málinu. Og bætur til farþega hækka ekkert þrátt fyrir tólf mánaða bið.
Ekki var neinn úr ritstjórn Fararheill í þeirri tívolíferð sem Primera Air bauð tæplega 200 farþegum sínum upp á í ágúst 2015 eins og lesa má um hér. Hins vegar þarf ekki sterkt ímyndarafl til að gera sér grein fyrir að 26 stunda flug frá Tenerife er ekkert minna en ömurlegt.
Eins og við spáðum fyrir datt sérfræðingum Samgöngustofu ekki annað í hug eftir að hafa skoðað gögn málsins en dæma farþegum fullar bætur fyrir hræðilegt flug og enn hræðilegri lífsreynslu enda fjölmargar barnafjölskyldur um borð.
En viðskiptamaður ársins 2007 er ekki að fara að gefa peninga ef hann mögulega kemst hjá. Hver og einn farþegi á nefninlega tæplega 90 þúsund krónur inni ef málið tapast fyrir Primera Air. Sem áfrýjaði til innanríkisráðuneytisins strax í kjölfar dóms Samgöngustofu í lok síðasta árs og þar situr málið eins og rotta í rotþró.
Smekklegt líka hjá íslenska ríkinu að taka sér sjö til átta mánuði að komast að niðurstöðu í málinu. En það eins og annað þar, hvorki sjálfstæðisflokkur né framsóknarflokkur vilja mikið snerta á málum sem gætu komið almenningi í landinu vel.
Ágætt að hafa þetta hugfast ef þér skyldi nú detta í hug að ferðast með Primera Air eða dótturfyrirtækinu Heimsferðum.







