Athyglisverð áminning birtist nú á áberandi stað á bókunarvef Wow Air Skúla Mogensen. Þá áminningu má sjá hér til hliðar: FLUGMIÐAR FÁST EKKI ENDURGREIDDIR!flugg

Það sem er helst áhugavert við þetta ákvæði Skúla er sú staðreynd að ákvæðið brýtur lög. Bæði íslensk neytendalög sem og Evrópureglur um réttindi flugfarþega kveða á um að flugmiði SKULI endurgreiddur við ákveðnar aðstæður. Og Skúli, þó ríkur sé, er ekki enn í þeirri stöðu að geta breytt lögum og reglum eftir behag.

Ekki svo að hin íslenska Neytendastofa fetti fingur eitt né neitt. Þar menn bissí að bora í nef, draga út og skjóta í þartilgerða markskífu í mötuneytinu frá 9 til 16 alla virka daga.

Engu að síður þarf Skúli, nema Wow Air sé orðið skráð á Panama, að hlíta Evrópureglum. Þar er réttur flugfarþega æði sterkur og við ýmsar aðstæður SKAL endurgreiða farþegum flugmiða. Til dæmis ef flugi seinkar um meira en fimm klukkustundir. Það eitt skapar endurgreiðslurétt og það samstundis.

Sorrí Skúli. Vitum að þú ert á háum hesti en þú eða þín fyrirtæki eru ekki hafin yfir lög og reglur 😉