Ófá skeytin hafa borist ritstjórn Fararheill undanfarin ár þar sem einstaklingar lýsa áhyggjum af því að flakka um á eigin vegum og jafnvel hoppa milli staða með lággjaldaflugfélögum. Sem er jú besta leiðin til að ferðast ódýrt.

Af átta flottustu lággjaldaflugfélögum Evrópu fljúga sex þeirra til og frá Íslandi.
Lággjaldaflugfélög per se er engin nýjung en margir Íslendingar eru að kynnast slíkum flugfélögum fyrst nú og margir skeptískir á að fljúga með slíkum fyrirtækjum. Eins og að klárt samasemmerki sé milli lágra fargjalda og lélegrar þjónustu.
Engin tenging er þar á milli. Fyrir utan þá oft leiðu staðreynd að allt aukalegt kostar extra er þjónusta yfirleitt á pari við það sem best gerist og það besta að velflest lággjaldaflugfélög fljúga undantekningarlítið nýjum rellum. Þær ekki aðeins fallegri og þrifalegri heldur og eyða töluvert minna eldsneyti og menga heiminn okkar aðeins minna fyrir vikið. Hafið í huga að meðalaldur alls flota hins vinsæla lággjaldaflugfélags easyJet er rétt rúmlega fimm ár. Meðalaldur flota Icelandair er rúmlega 20 ár til samanburðar.
Það því algerlega ástæðulaust að hafa áhyggjur af flugi með þessum lággjaldaflugfélögum. Þvert á móti eiginlega. Og þá vaknar spurningin hvert þeirra sé nú mest og best og fái besta einkunn hjá viðskiptavinum.
Samkvæmt nýjum lista flugvefsins Skytrax, sem valinn er næsta alfarið af fólki sem ferðast hefur með viðkomandi flugfélögum er það Norwegian sem hlýtur titilinn besta lággjaldaflugfélag Evrópu 2016. Norska flugfélagið gerir betur en það því Norwegian fær einnig hæstu einkunn þeirra lággjaldaflugfélaga sem fljúga langar vegalengdir.
Topplisti ársins er annars svona:
- NORWEGIAN
- EASYJET
- EUROWINGS
- NIKI
- RYANAIR
- VUELING
- WIZZAIR
- AIRBALTIC
Fyrir þau ykkar sem alltaf panta með sama íslenska flugfélaginu, af því að það er svo mikið betra að fljúga með þeim, er ágætt að hafa í huga að þau komast hvorug á blað sem sérstaklega góð flugfélög. Ekki síður ágætt að hafa bak eyra þá staðreynd að af þeim átta ofantöldu flugfélögum sem best þykja fljúga sex þeirra til og frá Íslandi yfir sumartímann og nokkur þeirra allan ársins hring.







