A hhhh… Cancún í Mexíkó. Sá staður vekur upp minningar um blíða hafgolu, þægilegan hita, kalda litríka drykki og fjölskyldufjör á ströndum. Nú er þetta allt sagt í hættu.

Nekt ein og sér gæti sloppið en á makaskiptahótelinu Desire er annað og meira í gangi og það fyrir margra augum
Ástæðan er að lúxushótelið Desire, Girnd, opnaði nýlega sinn annan stað í Puerto Morelos nálægt Cancún á mexíkósku rivíerunni. Sem er gott og blessað að því frátöldu að Desire er sérhæft hótel fyrir svokallaða swingers eða fólk með áhuga á makaskiptum.
Fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér swingers menninguna samanstendur hún af pörum eða hjónum sem vilja fjölbreytileika í samband sitt og eða kveikja kulnaða neista og koma því saman með öðrum pörum og hafa makaskipti eina kvöldstund eða svo.
Sem er gott og blessað, nema kannski hjá kaþólsku kirkjunni, ef ekki væri fyrir að dúlleríið fer fram fyrir galopnum tjöldum á strönd Puerto Morelos.
Íbúar Cancún og aðrir ferðamenn eru ósáttir að geta vart lengur farið með börn sín á ströndina án þess að eiga á hættu að rekast á par í miðjum klíðum og hafa krafist lokunar staðarins. Nóg sé af öðrum ströndum fyrir makaskipti en á vinsælustu ströndum Mexíkó.
En sú barátta er líklega fyrirfram töpuð. Slík fullorðinshótel rísa eins og gorkúlur víða um heim og á Jamaíka er næstum heil strönd, Negril, undirlögð slíkum hótelum. Virðist ekkert lát á þörf mannkyns að blanda geði, og öðru, og það helst nakin undir sólinni í útlöndum.







