Skemmtilegar fréttir sem berast af „þjóðhátíð“ í Vestmannaeyjum á vef Mbl. Þar er gríðarlegt stuð og „sannkallað Majorkaveður“ samkvæmt fyrirsögn á vef Moggans.

Vestmannaeyjar um Verslunarmannahelgi? Neibbs, bara Mallorca 🙂
Mogginn gleymir stundum að fjölmiðlum er ætlað að gefa eins raunsanna mynd af málum og frekast er unnt og skiptir þá engu hversu góð stemmning er í Eyjum.
Hitastigið á Mallorca þegar fréttin var skrifuð var 37 gráður á celsíus. Hitastigið í Vestmannaeyjum náði hámarki í fimmtán gráðum samkvæmt Veðurstofu Íslands.
Sambærilegt?
Varla.
Ef þetta kallast að „komast að kjarna málsins“ þá erum við í vondum málum.







