Menn virðast ekki vera mjög lausnamiðaðir hjá Icelandair svo notað sé orðskrípi sem er í tísku þessa dagana. Þeim fer bara fjölgandi kvörtununum yfir hrapallegri þjónustu flugfélagsins ár eftir ár.

Fljúgðu vel auglýsir Icelandair en ef eitthvað kemur upp á ertu í vondum málum.

Fljúgðu vel auglýsir Icelandair en ef eitthvað kemur upp á ertu í vondum málum.

Annaðhvort er eitthvað hræðilega súrt í þjónustuveri Icelandair eða að yfirstjórn flugfélagsins hefur ákveðið að slök þjónusta sé heila málið. Hvert sem litið er á samfélagsmiðlum yfirgnæfa kvartanir aðrar umsagnir viðskiptavina. Yfirleitt alltaf sömu vandamálin hjá flestum: farangur skilar sér ekki og/eða engin svör frá þjónustudeild flugfélagsins.

Gott og blessað og eðlilegt að það séu vaxtaverkir hjá þekktu íslensku flugfélagi þegar ferðamannafjöldi til landsins margfaldast á skömmum tíma. En að það taki einhver ár að ráða bót á sömu gömlu vandamálunum bendir til að einhver hjá flugfélaginu sé ekki að vinna vinnuna sína.

Líka sök sér að týna töskum farþega hvern einasta dag. Leiðakerfið er jú viðamikið og flókið og ekki alltaf heiglum hent að finna nál í heystakki.

En það er engin afsökun fyrir að bæta ekki viðbrögðin. Engin afsökun fyrir að farþegar nái ekki í gegn til þjónustuvers eða að þjónustuver taki sér daga og vikur til að svara örvæntingarfullum viðskiptavinum.

Það er jú ekki eins og það sé smámál þegar farangur skilar sér ekki með fólki á ferðalagi. Slíkt getur sett stórt og mikið strik í allar áætlanir. Í versta falli jafnvel valdið dauða ef lyf eða lífsnauðsynleg tæki eru í töskum viðkomandi.

Svona hefur þetta verið um fjögurra ára skeið tæplega og ekkert virðist lagast. Á sama tíma byggir flugfélagið hótel eftir hótel og greiðir hluthöfum fleiri milljarða króna arð.

Ljóst má vera að þessu fyrirtæki er slétt sama um viðskiptavininn þrátt fyrir fögur orð og auglýsingar.

 

laura

 

laura2

 

laura3

 

laura4

 

laura5

 

laura7