Hvað svo sem má segja um áætlunarflug Flugfélags Íslands til Aberdeen í Skotlandi sem hefst næsta vor þá eru fargjöldin töluvert lægri en í boði var hjá flugfélaginu hér fyrir fimm árum þegar tímabundið var boðið upp á beint flug til Noregs.

Farþegarými hefðbundinnar Bombardier 400 vélar

Farþegarými hefðbundinnar Bombardier 400 vélar

Úttekt Fararheill leiðir í ljós að lægsta verð á flugi fram og til baka næsta sumar með Flugfélagi Íslands til Aberdeen á austurströnd Skotlands kostar manninn 30.765 krónur eða röskar fimmtán þúsund krónur hvora leið fyrir sig.

Flugtíminn til Aberdeen er á pari við flugtíma til nokkurra þeirra staða sem Flugfélag Íslands flaug til og frá hér árið 2010 í tilraun sem reyndar varð endasleppt. Þá var lágmarksverð aðra leiðina tæpar 26 þúsund krónur.

Það jákvætt en öllu lakari er samanburðurinn við easyJet sem flýgur beint milli Keflavíkur og Edinborgar. Edinborg er einnig á austurströnd Skotlands en milli hennar og Aberdeen er tveggja stunda túr hvora leið. Það kannski óraunhæfur samanburður. EasyJet notar þotur en Flugfélagið Bombardier hreyflavélar sem eðli máls samkvæmt eru mun lengur á leiðinni. Algengt fargjald báðar leiðir með easyJet þegar þetta er skrifað um 20 þúsund krónur án farangurs.

Icelandair, sem selur ferðir dótturfélagsins til Skotlands, hefur búið til sína fjórðu tegund af almenningsfarrými vegna flugsins til Aberdeen. Það kallast það economy class special og ekki stendur til að hafa jafn þröngt um fólkið og gerist í Fokker-vélum Flugfélags Íslands. 32 tommu bil er milli sætaraða eða sambærilegt við economy farrými hefðbundinna þotna Icelandair.

Öllu merkilegra reyndar að samkvæmt vef Icelandair eru 3+3 sæti í Bombardier vélunum sem fljúga til og frá Aberdeen en ekki 2+2 eins og raunin er í flestum slíkum vélum. Assgoti má fólk sitja þétt saman ef það er raunin.

fli