Loks hefur flugleitarvefurinn Dohop sett rúsínu í pylsuendann. Nú er þar líka í boði að láta vaka yfir verðbreytingum á flugfargjöldum svo þú þurfir þess ekki.

Nú þarf ekki lengur að margtékka verð á flugi hjá Dohop. Skjáskot
Verðvaki er vægast sagt tímasparandi tækni fyrir þá sem ekki vilja borga of mikið fyrir flug um heiminn. Fyrirbærið hefur verið í boði á fjölmörgum öðrum sams konar vefmiðlum um nokkra hríð en betra seint en aldrei hjá Dohop.
Verðvaki fylgist náið með verðbreytingum á flugi og ekki vanþörf á því slíkar breytingar hjá flugfélögum eru afar örar og getur verð bæði hækkað og lækkað þó hið fyrrnefnda sé öllu algengara. Sérstaklega kemur þetta sér vel ef langt er í flug.
Segjum svo að þú þurfir til Berlínar 10. febrúar í vikutíma. Lægsta fargjald sem finnst við leit á Dohop og hentar þér er með Airberlin og kostar 25.000 svo dæmi sé tekið. Þér liggur ekkert á að bóka svo þú startar verðvakanum og sá sendir þér eftirleiðis skeyti í hvert skipti sem lægra verð en 25.000 finnst þessa sömu daga til og frá Berlín. Kannski hoppar Wow Air fram með tilboð sem er fimm þúsund krónum lægra. Verðvaki lætur þig vita.
Gott skref hjá Dohop þó reyndar hér sé flugleitarvefurinn töluvert á eftir öðrum stórum í bransanum.







